Meint man­sal og mis­beiting starfs­fólks á snyrti­stofum

Dæmi eru um að starfsfólk frá Víetnam hafi greitt milljónir fyrir tækifæri til að vinna við naglasnyrtingu á Íslandi. Fólkið hefur síðan verið svikið um laun og kjarasamningar virtir að vettugi. Eigendur sautján nagla- og snyrtistofa hafa verið kærðir eftir úttekt lögreglu á starfseminni, sem ráðist var í í vor. Þetta er á meðal þess sem fjallað var um í fréttaskýringaþættinum Kveik, sem sýndur var á RÚV í gærkvöldi.

Fram kom að allur gangur hafi verið á hvort stofurnar höfðu starfsleyfi og hvort þar var starfandi meistari, eins og lög kveða á um. Fjórum stofum var lokað strax og misalvarlegar athugasemdir gerðar við starfsemi hinna.

Í þættinum komu fram frásagnir starfsmanna sem segja að þeir hafi greitt háar fjárhæðir fyrir að fá að starfa hér á landi og staðið í skuldafjötrum sem bera sterk einkenni mansals og misbeitingar. Lögreglan staðfestir að kærurnar lúti fyrst og fremst að brotum á iðnaðarlögum og útlendingalögum, en í umfjölluninni var varpað ljósi á að málið sé jafnframt hluti af stærra mynstri undirboða og ólögmætrar starfsemi innan geirans. Á meðal þess sem fram kom var að kjör erlends starfsfólks á snyrtistofum eru í sumum tilfellum slík að starfsfólkið neyðist til að bjóða upp á kynlífsþjónustu, til að hafa í sig og á. Tvær snyrtistofur voru nefndar í slíku samhengi í Kveik.

Þær upplýsingar sem fram komu í þættinum ríma við þá upplifun sem FIT hefur orðið áskynja í vinnustaðaheimsóknum en vinnustaðaeftirlit félagsins heimsækir snyrtistofur eins og önnur fyrirtæki í greinum félagsins. FIT hefur meðal annars átt samstarf við ASÍ í þessum málum.

FIT minnir á að starfsfólk í snyrtigreinum, sem starfar hér á landi á rétt á öruggum vinnuskilyrðum og virðingu fyrir sínu starfi. Félagið hvetur bæði starfsfólk og viðskiptavini til að láta vita ef grunur vaknar um mansal eða ólögmæta starfsemi.

Þáttinn má sjá hér.