Samstaða, styrkur og stemning
Trúnaðarmannanámskeið FIT 2025
Það var líf og fjör þegar reyndir trúnaðarmenn Félags iðn- og tæknigreina komu saman á síðasta hluta trúnaðarmannanámskeiðsins. Stemningin var einstök – enda merkisviðburður fyrir marga, þar sem þeir luku sjötta og síðasta hluta fræðslunnar. FIT er svo sannarlega lánsamt að eiga hóp af kraftmiklum, áhugasömum og frábærum trúnaðarmönnum sem standa vaktina á vinnustöðum víða um land.
Fræðslan byggir á námskrá sem er vottuð af Menntamálastofnun og lýsir námi á 2. þrepi hæfniramma íslensks menntakerfis. Þar er lögð áhersla á að efla bæði faglega hæfni og samskiptatækni trúnaðarmanna.
Á þessum lokaáfanga var sérstaklega fjallað um eðli og markmið samninga – hvernig meta má stöðu sína til að ná samkomulagi við stjórnendur, hvernig bregðast skal við deilum og vinna að lausnum. Þá var einnig æft að undirbúa framsögu og umræðu á vinnustaða- og félagsfundum, með áherslu á skýra framsetningu og áhrifaríka tjáningu. Það kom skýrt í ljós að meðal trúnaðarmanna FIT leynast liprir, fyndnir og snjallir ræðumenn sem kunna að fanga athygli og flytja mál sitt af sannfæringu.
Kennsla og umsjón námskeiðsins var í höndum Bergþóru Guðjónsdóttur, skólastjóra, Sigurlaugar B. Gröndal, verkefnastjóra Félagsmálaskóla alþýðu, og Gunnars Halldórs Gunnarssonar, sérfræðings hjá FIT. Formaður FIT, Hilmar Harðarson, heilsaði upp á hópinn og hvatti trúnaðarmenn áfram til góðra verka – með orðum um að samstaða, þekking og traust séu lykilatriði í starfi þeirra.




