Opið samtal um fræðslu og framtíð iðngreina á Norðurlandi
Félagsfólki er boðið til opins fundar í Menningarhúsinu Hofi miðvikudaginn 19. nóvember klukkan, frá klukkan 17 til 19. Þar verður rætt um hvernig fræðsla og símenntun geti best stutt við iðngreinar á svæðinu. Að viðburðinum standa Iðan fræðslusetur, Samtök iðnaðarins, FMA, Byggiðn og FIT. Markmiðið er að heyra beint frá þeim sem starfa í greininni hvaða þjálfun og hæfni skiptir mestu máli og hvernig tryggja megi að framboð fræðslu þróist í takt við þarfir atvinnulífsins.
Dagskráin er fjölbreytt. Jóhann Rúnar, formaður Félags málmiðnaðarmanna á Akureyri, setur fundinn og næst á svið kemur Benedikt Barðason, skólastjóri VMA. Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar, kynnir starfsemi fræðslusetursins og framtíðarsýn þess. Þá taka við erindi Ólafs Ástgeirssonar, leiðtoga bygginga- og mannvirkjagreina, Óskars Grétarssonar, leiðtoga málm- og véltæknigreina, og Sigurðar Svavars Indriðasonar, leiðtoga bílgreina hjá Iðunni. Adam Snær Atlason deilir einnig eigin reynslu áður en Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, sérfræðingur í mennta- og mannauðsmálum hjá SI, rekur smiðshöggið.
Í lok fundar verður boðið upp á kaffistofuspjall þar sem þátttakendur geta rætt sínar þarfir og hugmyndir um fræðslu og framtíð iðngreina á svæðinu. Gestum verður jafnframt boðið upp á léttar veitingar. Allir sem mæta á staðinn og skrá sig á póstlista fara í pott og eiga möguleika á að vinna námskeið að eigin vali hjá Iðunni fræðslusetri.




