Félags- og faggreinafundir í lok nóvember

Félags- og faggreinafundir Félags iðn- og tæknigreina verða haldnir í lok nóvember. Félagsfólk er hvatt til að fjölmenna á fundina.

Glæný kjarakönnun félagsins er á meðal þess sem tekið verður fyrir á fundunum sem og lífeyrismál.

Veitingar verða í boði félagsins.

Þetta eru fimm fundir, sem haldnir verða á eftirfarandi stöðum:

 

Reykjanesbær

  • Mánudaginn 24. nóvember kl. 18:00
  • Krossmóum 4, fjórða hæð

Selfoss

  • Þriðjudagurinn 25. nóvember kl. 18:00
  • Austurvegur 56, þriðja hæð

Reykjavík

  • Miðvikudagurinn 26. nóvember kl. 18:00
  • Stórhöfða 31.  Gengið inn Grafarvogsmeginn

Akranes

  • Fimmtudaginn 27. nóvember kl. 18:00
  • Salur Samfylkingar, Stillholti 16-18

Vestmannaeyjar

  • Föstudagurinn 28. nóvemeber kl. 12:00
  • Gott, Bárustíg 11