Tæplega 90 nýsveinar fengu sveinsbréf

Áttatíu og fjórir nýsveinar úr átta iðngreinum fengu sveinbréf sín afhent við glæsilega athöfn á Hótel Nordica á þriðjudaginn, 18. nóvember síðastliðinn. Þar af voru 17 úr hársnyrtiiðn og 15 bifvélavirkjar.

Skemmtiatriði voru á dagskránni og veitingar voru að sjálfsögðu úr efstu hillu, eins og venjan er þegar IÐAN heldur þessar útskriftir.

FIT óskar nýsveinunum, sem margir eru þegar meðlimir í félaginu, til hamingju með áfangann.

  • Prentsmíði: 6
  • Ljósmyndun: 4
  • Blikksmíði:3
  • Stálsmíði: 8
  • Vélvirkjun: 20
  • Bifvélavirkjun: 15
  • Hársnyrtiiðn: 17
  • Snyrtifræði: 11

Rúnar Hreinsson, ljósmyndari félagsins, festi athöfnina venju samkvæmt á filmu. Þær eru nú í myndasafni FIT en má einnig sjá hér fyrir neðan.