Vel mætt á fund um framtíð iðngreina
Opið samtal um fræðslu og framtíð iðngreina á Norðurlandi fór fram í Hofi á Akureyri síðastliðinn miðvikudag. Að viðburðinum stóðu ásamt FIT, Iðan fræðslusetur, FMA, Byggiðn og Samtök iðnaðarins.
Jóhann Rúnar Sigurðsson formaður FMA opnaði fundinn, fór yfir aðdraganda hans og lagði áherslu á mikilvægi þess að efla samstarf Iðunnar við landsbyggðina enn frekar. Iðan væri flottur vettvangur fyrir endurmenntun og mikilvægt væri að nýta hann rétt.
Vilborg Helga Harðardóttir framkvæmdastjóri kynnti starfsemina og framtíðarsýn Iðunnar. Hún lagði meðal annars áherslu á að móta þjónustu og fræðslu Iðunnar beint í gegnum samtal við félagsfólk og fyrirtæki í iðnaði.
Á eftir fylgdu erindi Óskars Grétarssonar, leiðtoga málm- og véltæknigreina, Ólafs Ástgeirssonar, leiðtoga bygginga- og mannvirkjagreina og Sigurðar Svavars Indriðasonar, leiðtoga bílgreina hjá Iðunni, en þeir fóru yfir stöðu fræðslumála innan sinna greina. Adam Snær Atlason kom fram og sýndi athyglisvert myndband þar sem náms- og starfsferill hans var rakinn – allt frá því hann lauk námi í VMA til starfa hans sem verkstjóri stálsmiðju Slippsins á Akureyri.
Í lokin var boðið upp á kaffistofuspjall sem Harpa Björg Guðfinnsdóttir leiddi með því að fara yfir niðurstöður spurningakönnunar sem lögð hafði verið fyrir fundargesti um þarfir og tækifæri í fræðslumálum á svæðinu. Í samtalinu tóku þátt Andri Ólafsson, flokkstjóri hjá Slippnum, Arnþór Örlygsson, verkstjóri hjá Kraftbílum, Ármann Ketilsson, formaður MBN og húsasmíðameistari hjá ÁK smíði, Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, sérfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins, og Unnur Ása Atladóttir, sviðsstjóri verknámsbrauta VMA.
Fundurinn var vel sóttur og erindin bæði áhugaverð og upplýsandi. Boðið var upp á góðar veitingar og lifandi tónlist, svo úr varð notaleg stund í Hofi. Félagsfólki eru færðar þakkir fyrir samveruna.
Meðfylgjandi myndir voru teknar á fundinum.



















