Vill prófa að vinna í framandi landi
Viðtal við Hauk Jensson bifvélavirkja
Bifvélavirkinn og rafvirkinn Haukur Jensson útskrifaðist úr námi sem bifvélavirki árið 2018 en lauk sveinsprófi 2019. Hann hefur hins vegar unnið við fagið í tíu ár, allt frá árinu 2016. Haukur hefur verið í hálft annað ár hjá bílaumboðinu Öskju og starfar við forgreiningu bilana hjá KIA. Áður vann hann í sjö ár hjá BL í viðgerðum á Land Rover.
Haukur segir að starfið hjá Öskju sé mjög fjölbreytt. „Við tökum inn tólf bíla á dag og forgreinum bilanir. Þetta er þjónusta þar sem bókað er tvo daga fram í tímann. Ef um er að ræða minni háttar vandamál þá lögum við það en bókum tíma á verkstæði fyrir stærri viðgerðir ef svo ber undir,“ segir Haukur um starfið sitt. Fyrir vikið berast honum alls kyns verkefni.
Hætti við rafeindavirkjun
Haukur hóf nám í rafeindavirkjun aðeins 16 ára gamall en fann sig ekki nógu vel í þeim hópi sem þar lagði stund á námið. Flestir voru fullorðnir fjölskyldumenn með tilheyrandi reynslu. Lítið umburðarlyndi hafi ríkt gagnvart því að hann væri lengur að ná tökum á verkefnunum. Hann hafi því ákveðið að skipta um gír og skella sér í nám í bifvélavirkjun í Borgarholtsskóla.
„Ég fór yfir í Borgó 2016 og kláraði það nám. Ég fór svo reyndar seinna aftur í Tækniskólann og kláraði rafvirkjann,“ segir Haukur en grunndeild fyrir rafvirkjun og rafeindavirkjun er sú sama. „Ég útskrifaðist sem rafvirki í fyrra.“
Hann segir að rafvirkjamenntunin nýtist sér mjög vel í því starfi sem hann gegnir hjá Öskju.
Nám virðist eiga mjög vel við Hauk því hann er, samhliða vinnunni, á annarri önn í meistaraskólanum í bifvélavirkjun. Hann nefnir að námið veiti honum meistararéttindi í tveimur iðngreinum; bifvélavirkjun og rafvirkjun. Það komi sér mjög vel. „Ég fæ tvo fyrir einn ef ég klára þetta,“ segir hann glaðbeittur.
Hagnýt trúnaðarmannafræðsla
Haukur er trúnaðarmaður hjá Öskju en hann áætlar að yfir 50 bifvélavirkjar starfi hjá fyrirtækinu. Hann segir að raunar þyrftu trúnaðarmennirnir að vera tveir, miðað við þau viðmið sem gilda. Hann segist aðspurður hafa boðið sig fram til þess að vera trúnaðarmaður – enginn trúnaðarmaður hafi verið starfandi þegar hann kom til fyrirtækisins. „Mér líkaði alltaf vel við trúnaðarmanninn hjá BL og hann otaði þessu svolítið að mér,“ segir hann, spurður hvernig þessi hugmynd hafi kviknað.
Sem betur fer hefur Haukur lítið þurft að beita sér í hlutverki trúnaðarmanns, ef eitt eineltismál er frátalið. Hann hefur lokið tveimur námskeiðum í trúnaðarmannafræðslu Samiðnar og segir að sú fræðsla sé mjög gagnleg. „Þetta er hagnýtt bæði fyrir vinnuna og lífið líka. Þetta hefur nýst mér vel í starfi,“ segir hann.
Alþjóðlega bílafyrirtækið Inchcape keypti allt hlutafé í Bílaumboðinu Öskju fyrr á árinu. Hjá fyrirtækinu starfa 16.000 manns á 38 mörkuðum um allan heim. Haukur segist binda vonir við að geta, þegar fram í sækir, nýtt sér stærð fyrirtækisins til að starfa sem bifvélavirki á erlendri grundu. „Mig langar einhvern tíma að prófa að vinna við þetta í Ástralíu eða á Nýja-Sjálandi,“ segir hann lokum.




