Sumarúthlutun orlofshúsa
Sumarúthlutun orlofshúsa er á næsta leyti. Hér fyrir neðan er tímalína úthlutunar:
- Mánudaginn 16. febrúar er opnað fyrir umsóknir á orlofshúsasíðu FIT þar sem hægt er að sækja um sumarúthlutun.
- Mánudaginn 23. febrúar klukkan 13:00 er lokað fyrir umsóknir um sumarúthlutun.
- Miðvikudaginn 25. febrúar eiga allir að hafa fengið svar við orlofsumsókn sinni.
- Mánudaginn 9. mars lýkur greiðslufresti þeirra sem hafa fengið úthlutað. Þriðjudaginn 10. mars klukkan 13:00 eru ógreiddar og óúthlutaðar vikur settar á orlofsvefinn og þá gildir fyrstur kemur fyrstur fær.
Því fleiri valkosti sem merkt er við í umsókn á orlofsvefnum, þeim mun meiri líkur eru á úthlutun. Ef fleiri en ein umsókn er um sama húsið á sama tímabili ræður punktafjöldi hver hreppir hnossið. Ef punktafjöldi er jafn, ræður sú umsókn sem berst fyrst. Vetrarúthlutun skerðir ekki rétt til sumarúthlutunar.
Ávinnsla og frádráttur punkta
Hver félagsmaður ávinnur sér einn punkt fyrir hvern mánuð sem greitt er af honum í orlofssjóð félagsins. Sé um hlutastarf að ræða ávinnast punktar í hlutfalli við starfshlutfall. Frádráttur punkta við úthlutun
• Fyrir páskavikuna eru dregnir frá 26 punktar.
• Frá fyrstu útleiguviku í júnímánði til síðasta föstudags í júní eru dregnir frá 26 punktar.
• Frá síðasta föstudegi júnímánaðar fram í miðjan ágúst eru dregnir frá 36 punktar.
• Frá miðjum ágúst til fyrsta föstudags í september eru dregnir frá 26 punktar.
• ATH. Punktar eru bakfærðir ef úthlutun er ekki nýtt.
• Við úthlutun á öðrum tímum koma engir punktar til frádráttar.
• Engir punktar eru dregnir frá við leigu á húsinu í Orlando.
Að panta hús
Þegar pantað er á vefnum þarf að skrá sig inn á Félagavef FIT. Innskráning er með rafrænum skilríkjum eða í gegnum Auðkennis appið. Eftir innskráningu er komið á yfirlitssíðu.Til að skoða úrval orlofseigna er farið í Valmynd – Orlofseignir – Framboð Einnig er hægt að skoða “Bókunardagatal” til að sjá lausa daga og tímabil. Í Bókunardagatalinu eru lausir dagar og tímabil græn. Það sem ekki er hægt að bóka er hvíttVeldu upphaf og loka dag leigu. Því næst er smellt á “TAKA FRÁ”. Nú er pöntunin frátekin í 15 mínútur.
Til að ganga frá greiðslu er smellt á “GREIÐA”. Fylla þarf inn upplýsingar um netfang og símanúmer. Athugið vel hvort að netfang sé rétt, leigusamningur verður sendur á uppgefið netfang.
Breytingargjald
Fyrir breytingar eða afpöntun á öllum bókunum á orlofsvef er tekið breytingargjald kr. 3.000.




