Mikilvægt að tileinka sér nýja tækni

Sigurður Svavar Indriðason er leiðtogi bílgreina hjá Iðunni

„Það er mjög mikilvægt, ekki síst fyrir ungt fólk sem er að klára námið, að átta sig á því hvert bílgreinarnar stefna. Þetta er ekki sama starfið og það var fyrir nokkrum árum og það getur orðið mjög verðmætt að tileinka sér snemma þekkingu þegar kemur að rafmagni, tölvum og nýrri tækni í bílum,“ segir Sigurður Svavar Indriðason, leiðtogi bílgreina hjá Iðunni fræðslusetri, í samtali við FIT.

Sigurður hefur verið í tæplega níu ár í hlutverki leiðtoga bílgreina hjá Iðunni, þótt hann verði ekki nema 37 ára á árinu. „Ég er í grunninn bifreiðasmiður og tók svo bifvélavirkjun. Þaðan fór ég í vélaverkfræði og lauk loks meistaragráðu í bílaverkfræði í Svíþjóð. Úr því námi kom ég til Iðunnar 2017,“ segir hann.

Svið bílgreina stendur að jafnaði fyrir um 100 námskeiðum á hverju ári en sú tala er breytileg. Geirinn telur tæplega 2.000 manns (flestir í FIT) en Sigurður segir að á síðasta starfsári hafi 579 manns komið á námskeið í bílgreinum hjá Iðunni. Hlutfallið sé oft um 20-25% af heildarfjölda félagsmanna. Þetta sýnir að þeir sem starfa í bílgreinum eru duglegir að sækja sér endurmenntun.

Sigurður bendir á að fáar greinar hafi upplifað jafn örar og miklar tæknibreytingar og bílgreinar á undanförnum árum. Hann nefnir þar rafbílavæðinguna en líka alls kyns kerfi sem snúa að akstursöryggi, myndavélabúnaði, smáforritum, kvörðunum og fleira. „Áherslan okkar síðustu fimm árin hefur verið á rafbílana. Mikil þörf er á endurmenntun í geiranum samhliða innleiðingu allrar þeirrar tækni. Enginn starfandi bifvélavirki með einhverja reynslu hefur lært á rafbíla í náminu. Það tekur líka tíma fyrir námið og atvinnulífið að hlaupa á eftir þessari tækniþróun. Við reynum að brúa þetta bil og minnka það; við reynum að sjá aðeins inn í framtíðina og bjóða upp námskeið í samræmi við það,“ segir hann.

Alþjóðlega vottuð rafbílanámskeið

Rafbílanámskeið Iðunnar hafa verið í þróun frá því fyrir heimsfaraldur og hafa notið mikilla vinsælda. Um er að ræða námskeið sem eru vottuð af IMI í Bretlandi og hafa verið undanfarin fimm ár. Sigurður segir að Iðan fái reglubundið erlenda kennara og sérfræðinga, sem sérhæfi sig t.d. í rafbílum, til að kenna ýmis námskeið. Sú leið hafi mælst vel fyrir enda geti verið erfitt að finna og fá sérfræðinga hér heima til að kenna. Bílar séu ekki framleiddir hér og því geti reynst erfitt að nálgast góðar upplýsingar en þar komi bílaumboðin hér heima oft til hjálpar.

Hann segir afar mikilvægt fyrir þjónustufyrirtækin að geta sýnt bílaumboðum, birgjum og öðrum aðilum fram á að innan þeirra sé starfsfólk með alþjóðlega vottaða þekkingu til að þjónusta bílana. Þetta eigi líka við um vörubíla og vinnutæki.

„Maður finnur það líka, eftir öll þessi námskeið, að þekkingin í greininni hérna heima, þegar kemur að þessari tækni, er orðin miklu meiri en áður. Okkur hefur að mínu mati gengið vel að koma til móts við fólk þegar kemur að þessum málum. Á þessum námskeiðum förum við yfir ýmis grunnatriði þegar kemur að þessum kerfum; svo sem varðandi öryggi, drægni, rafhlöður og viðhald. Okkar námskeið eru mjög öryggismiðuð.“

Aðspurður segir Sigurður að nýrri tækni í bílum fleyti sífellt fram og að í dag sé þörf á að kenna enn dýpri bilanagreiningar á þennan búnað. Til þess hafi erlendir aðilar komið og haldið námskeið hjá Iðunni að undanförnu. Það sé mikilvæg viðbót.

Breyta Land Rover í rafbíl

Sitt sýnist hverjum um innreið rafbíla á Íslandi og þeir eru til sem finna rafknúnum bílum allt til foráttu. Sigurður segir að ef til vill ráði þar einhver blanda af ótta við nýja tækni og nostalgíu. Inn í það spili jafnframt pólitík og ýmis önnur sjónarmið.

Hann nefnir að drægnikvíðinn hafi lengi verið áberandi en nú sé verið að framleiða rafbíla sem komist nánast eins langt á hleðslunni og bensín- eða díselbílar á einum tanki. Þá sé tíminn sem það tekur að hlaða rafhlöðurnar alltaf að styttast og nálgist óðfluga þann tíma sem það tekur að fylla á tank á bensíndælu – þótt tíminn verði kannski aldrei alveg sá sami. Hann bendir á að hleðslutíminn sé nú kominn niður í 10 til 15 mínútur, í sumum tilfellum. „Við erum komin skuggalega nálægt því að geta hlaðið rafbíl á fimm mínútum,“ segir hann.

Sú hugmynd kviknaði á sviði bílgreina hjá Iðunni að ráðast í verkefni sem gæti leitt saman þessa ólíku menningarhópa innan bílgreinanna. Á þessari önn stendur til að breyta 18 ára gömlum díselknúnum Land Rover-ferðaþjónustujeppa á 38 tommu dekkjum í rafbíl. Í hann verður sett rafhlaða og mótor úr Nissan Leaf.

„Við fáum hingað aðila frá Electric Classic Cars en fyrirtækið er einn reynslumesti aðilinn í heiminum þegar kemur að slíkum breytingum. Þeir munu halda hjá okkur tvö bókleg námskeið en að þeim loknum munu þrír dagar verða nýttir til þessarar breytingar á jeppanum. Bíllinn mun að svo búnu rúlla út á rafmagni og halda áfram að þjónusta ferðamenn,“ segir Sigurður. Hann segir að um sé að ræða samstarfsverkefni milli Iðunnar og ferðaþjónustufyrirtækisins Ísaks en þetta muni án efa vekja athygli ýmissa aðila. „Það mun svo koma í ljós í kjölfarið hvort drægnin sé næg og hvort það sé raunhæfur kostar að rafvæða svona tæki og reka eða ekki.“

Mikilvægt að tileinka sér tæknina

Föst námskeið eru á dagskrá á hverri önn á sviði bílgreina hjá Iðunni en einnig eru haldin námskeið fyrir fyrirtæki og jafnvel stofnanir. Sigurður segir afar mikilvægt fyrir Iðuna hlusta á þarfir markaðarins þegar kemur að eftirspurn eftir fræðslu. Fyrirtæki hafi oft frumkvæði að því að standa fyrir námskeiðum fyrir starfsmenn sína. Mikilvægt sé að þau hiki ekki við að koma á framfæri óskum til Iðunnar um fræðslu sem þau vilja að starfsfólk hafi kost á að tileinka sér. „Það getur verið erfitt að fylgjast með og meta þarfir 2.000 manns sem starfa í bílgreinum. Nýsköpunarstarfsemin er þess vegna svo mikilvæg þrátt fyrir að sum námskeið bílgreina séu á dagskrá á hverri einustu önn,“ segir hann.

Sigurður bendir á að þótt áhersla hafi verið á rafbíla í námskeiðahaldi Iðunnar sé af nógu að taka þegar kemur að bílum sem knúnir eru með hefðbundnum orkugjöfum. Þar sé sífellt verið að kynna nýja tækni til leiks. Mikilvægast sé fyrir fólk í þessum greinum að tileinka sér þessa tækni – en ekki snúa við henni bakinu. „Við finnum að atvinnulífið er að kalla eftir meiri þekkingu á bílarafmagni. Það verður verðmæt þekking fyrir þá sem tileinka sér hana, þegar fram í sækir,“ segir hann að lokum.

Viðtalið birtist fyrst í Fréttabréfi FIT, í janúar 2026.