Hátíðahöldin 1. maí – kaffiboð á Stórhöfða
Baráttudagur verkalýðsins, 1. maí, verður haldinn hátíðlegur um allt land. Yfirskrift dagsins að þessu sinni er „Styrkur okkar er velferð allra“.
FIT býður félagsfólki í kaffi á Stórhöfða 31, í tilefnis dagsins. Gengið er inn í húsið Grafarvogsmegin en kaffið hefst klukkan 14:00.
Félagsfólk er hvatt til að taka þátt í hátíðahöldunum.
—
Reykjavík
- 13:00 Safnast saman á Skólavörðuholti.
- 13:30 Gangan hefst og fer niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan í göngunni niður á Ingólfstorg.
- 14:00 Útifundur hefst á Ingólfstorgi. Fundarstjóri er er Felix Bergsson, fjölmiðlamaður og leikari. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, ávarpar fundinn og Inspector Spacetime tekur lagið. Í lok fundarins verður samsöngur.
Dagskráin verður táknmálstúlkuð
—
Selfoss
- Lúðrasveit Selfoss og Hestamannafélagið Steipnir leiða kröfugöngu kl. 11:00 frá Asturvegi 56 að Hótel Selfossi þar sem dagskrá og skemmtun fer fram.
- Kynnir: Jónas Yngvi Ásgrímsson
- Ræðumaður: Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, framkvæmdastjóri BSRB
- Ungur ræðumaður frá Menntaskólanum á Laugarvatni: Elena R Marquez Gunnlaugsdóttir
- Tónlistaratriði frá Tónsmiðjunni: Rannveig Helga Kjartansdóttir og Örn Hreinsson
- Leikhópurinn Lotta
- Fimleikadeildin sér um andlitsmálun
—
Reykjanesbær
Hátíðardagskrá í Stapa
- Húsið opnar 13:45
- Blásturssveit tónlistarskóla Reykjanesbæjar tekur á móti gestum
- Guðmundur Hermannsson leikur létta tóna fyrir dagskrá og á milli atriða
- 14:00 Opnun og kynning, kynnir Guðbjörg Krismundsdóttir formaður VSFK
- 14:10 Hátíðarræða; Kristján Gunnarsson formaður félags eldri borgara á Suðurnesjum
- 14:30 Ungleikhúsið/PPU
- 14:50 Kósýbandið tekur nokkur lög 15:40 Leikfélag Keflavíkur með atriði úr Söngleiknum We will rock you
- 16:00 Kór Ytri Njarðvíkurkirkju lokar dagskrá með söng
Bíósýning verður fyrir ungu kynslóðina í Sambíóinu við Hafnargötu kl. 12:00
—
Akranes
Kröfuganga frá Þjóðbraut 1 kl 14:00
- Hljóðfæraleikur í göngu: Trommusveit TOSKA
- Stjórnandi: Heiðrún Hámundardóttir
- Gengið er að Dalbraut 4
Dagskrá:
- Setning hátíðarfundar – Vilhjálmur Birgisson
- Kvennakórinn Ymur syngur (Stjórnandi: Sigríður Elliðadóttir)
- Hátíðarræða – Elín Theódóra Reynisdóttir
- Kvennakórinn Ymur syngur fleiri lög
- Fjöldasöngur: Maístjarnan og Alþjóðasöngur Verkalýðsins (Internasjónalinn)
- Kaffiveitingar
Bíósýning fyrir börnin í Bíóhöllinni á Akranesi kl 15:30 – Super Mario
—
Vestmannaeyjar
1. maí verður haldinn í Akóges og opnar húsið kl. 14:00
- Tónlistarskóli Vestmannaeyja verður með fjölbreytt tónlistar- og söngatriði.
- Kaffiveitingar og verður Björg Bjarnadóttir framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins með ávarp dagsins.
- Andlitsmálning og blöðrur handa yngstu kynslóðinni
- Allir velkomnir og aðgangur að sjálfsögðu ókeypis.
Sendum launafólki hátíðar- og baráttukveðjur í tilefni dagsins




