Samstaða áberandi á baráttudegi verkalýðsins
Fjölmenni tók þátt í kröfugöngum um allt land þann 1. maí síðastliðinn, á baráttudegi verkalýðsins. Hátíðahöldin fóru vel fram, venju samkvæmt, enda veður yfirleitt gott og samstaðan áberandi. Þung staða efnahagsmála og vísbendingar um að kjarasamningar kunni að bresta hefur þjappað vinnandi stéttum saman. Baráttuhugur einkenndi andrúmsloftið.
Ljósmyndari FIT fylgdist með göngunni og útifundinum í Reykjavík en að dagskrá lokinni bauð FIT félagsfólki til kaffisamsætis á Stórhöfða 31. Þar var að venju margt um manninn.
Sjá myndir frá 1. maí hér.




