Orlofsuppbót greiðist 1. júní
Athygli er vakin á því að orlofsuppbót greiðist 1. júní, miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum miðað við 30. apríl eða eru í starfi 1. maí.
Orlofsuppbót á almennum vinnumarkaði er 62 þúsund krónur árið 2026.
> Ríkissjóður kr. 62.000,-
> Reykjavíkurborg kr. 62.000,-
> Strætó kr. 62.000,-
> Orkuveitan kr. 86.000,-
> Samband íslenskra sveitafélaga kr. 62.000,-
> Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma kr. 62.000,–




