Opnað fyrir haustleigu orlofshúsa

Orlofshús

Mánudaginn 1. júní kl 13:00 verður opnað fyrir haustleigu á orlofseignum félagsins á orlofsvefnum.

Tímabil haustleigu byrjar 4. september og því lýkur 4. janúar 2027. Á haustin er ekki stuðst við punktakerfi og reglan er fyrstur pantar fyrstur fær og engin punktafrádráttur við leigu.

Fyrst í stað er ein leiga leyfð á hvern félagsmann en 1. október fjölgar leigum um eina og verður tvær á félagsmann.

Orlofsbústaðurinn Illugastaðir í Fnjóskadal verður leigður út aðra hverja helgi til áramóta.

Jóla- og áramótaleiga orlofsbústaða verður í formi vikuleigu. Jólavikan er frá 22. desember kl 16:00 til hádegis þann 29. desember. Áramótavikan er frá 30. desember kl 16:00 til 4. janúar kl 12:00