Glæsileg dagskrá á fjölskylduhátíð Iðunnar 16. ágúst

Í tilefni af 20 ára afmæli Iðunnar er öllu félagsfólki FIT og annarra aðildarfélaga boðið að koma og fagna á skemmtilegri fjölskylduhátíð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sunnudaginn 16. ágúst nk. Stórstjörnurnar Jón Jónsson, Ragga Gísla, KK og VÆB mæta til að halda uppi stemningunni.

Gestir eru hvattir til að mæta snemma og njóta alls þess sem garðurinn hefur upp á að bjóða.

Hátíðin hefst kl. 12:00 þegar Leikhópurinn Lotta mætir á svæðið með skemmtilegt atriði á sviði og gengur svo um garðinn.

Klukkan 13:00 hefst dagskrá á sviðinu þar sem Jón Jónsson, KK, Ragga Gísla og VÆB koma fram.

Milli 12:00 og 15:00 verður ýmislegt skemmtilegt í boði fyrir alla fjölskylduna:

  • Pylsur af grillinu fyrir félagsfólk
  • Andlitsmálun fyrir börn
  • Barmmerkjasmiðja
  • Búningafjör
  • Rafbílarallý

Skráning fer fram hér.

Myndin er úr safni.