Glæsilegt nýtt orlofshús opnar í Húsafelli

FIT opnar næstkomandi föstudag, 21. ágúst, glæsilegt nýtt orlofshús í Birkilundi 3 í Húsafelli.

Um er að ræða nýtt hús sem reist hefur verið á gömlum grunni. Mikill metnaður hefur verið lagður í húsið eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.

Orlofseignir FIT eru mikið nýttar en á árinu 2025 voru skráðar ríflega 7.500 gistinætur í orlofseignum félagsins og leigurnar voru rúmlega 1.800. Húsafell hefur þegar verið vinsæll áfangastaður félagsfólks en Kiðárbotnar 1 í Húsafelli var sjötta vinsælasta orlofseign FIT árið 2025, með 248 gistinætur. Bygging þessa glæsilega húss er liður í þeirri vegferð FIT að bæta orlofskosti á svæðinu enn frekar.

Hægt verður að bóka vikuleigu í húsinu frá og með föstudeginum 21. ágúst á Mínum síðum FIT. Fyrstur kemur, fyrstur fær.