Undirbúningsnámskeið fyrir sveinspróf – skráning
Félag iðn- og tæknigreina, FIT, stendur í september fyrir undirbúningsnámskeiði fyrir sveinspróf í hársnyrtiiðn. Námskeiðið hefst 8. september og stendur til 26. september en Andri Guðmundsson hefur umsjón með kennslunni en honum til halds traust verða aðrir fagmenn og kennarar. Athugið að bóklega kennslan fer fram á Stórhöfða 31 (gengið inn Grafarvogsmegin) en verklegu tímarnir í Hárakademíunni.
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu þætti sem tengjast sveinsprófinu, bæði bóklega og verklega. Meðal annars verður unnið með stutta og síða línu, litun, permanent, blástur, greiðslu og skegg auk þess sem farið verður yfir verklýsingar. Námskeiðinu lýkur með opnum degi þar sem allir kennarar verða á staðnum.
Námskeiðsgjaldið er 5.000 krónur og er kennsla og veitingar innifaldar í verðinu. Nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið.




