Ferð eldri félaga 4. september – skráning

Ágætu félagar!

Föstudaginn 4. september verður farið í árlegt ferðalag eldri félagsmanna Félags iðn- og tæknigreina.

Fyrir þá sem eru að fá boð í fyrsta sinn skal upplýst að ferðirnar eru félögum að kostnaðarlausu en allir þeir sem náð hafa 67 ára aldri eða verða 67 ára á árinu fá boð og gildir það einungis fyrir félagsmenn (án maka).

Við leggjum af stað frá bílastæði Árbæjarsafns kl. 09:00 stundvíslega undir stjórn fararstjóra. Lagt verður af stað frá Akranesi og Reykjanesbæ kl 08:00.

Félag iðn- og tæknigreina mun bjóða til hádegisverðar á leiðinni og farið verður í heimsókn á athyglisverðan stað. Við gerum svo ráð fyrir að kom aftur að Árbæjarsafni um kl. 18:00.

Hámarksfjöldi félaga í ferðina miðast við 100 manns í tvær rútur. Því er nauðsynlegt að skrá sig snemma.

Nauðsynlegt er að þeir sem ætla með, skrái sig á netinu í rafrænni skráningu (hér að neðan) í síðasta lagi þriðjudaginn 1. september. Ef þið þurfið aðstoð við skráningu eða viljið fá frekari upplýsingar er hægt að hringja í síma 535-6000.

Athugið að gefa þarf upp nafn, kennitölu, síma, heimilisfang, starfsheiti og brottfararstað.

Skráning í heldrimannaferðina 4. september 2026

Hafið samband við félagið ef þið þurfið aðstoð.

This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Nafn(Required)
Netfang(Required)