Verkfalli hársnyrtifólks aflýst á elleftu stundu í Noregi

Boðuðu verkfalli 165 starfsfólks í hársnyrtigreinum á 43 hársnyrtistofum í Bergen í Noregi var afstýrt í gærmorgun þegar samkomulag náðist milli aðila eftir stífar samningaviðræður. Hársnyrtifólk var reiðubúið að leggja niður störf frá morgni 25. ágúst ef ekki næðist samkomulag.

Helstu deilumálin sneru að fyrirframgreiðslu sjúkradagpeninga og hækkun lágmarkslauna. Fagforbundet, sem fer með samningsumboð hársnyrtifólks, hafði bent á að fyrirframgreiðsla sjúkradagpeninga frá atvinnurekanda væri almenna reglan á norskum vinnumarkaði en hársnyrtifólk hefði þurft að bíða eftir greiðslum frá NAV þegar veikindi kæmu upp.

Stéttin er á meðal þeirra tekjulægri í Noregi. Í könnun meðal félagsfólks sögðust 45% hársnyrtifólks ekki eiga neinn sparnað og 21% til viðbótar aðeins hafa nægan varasjóð til að komast af í eina viku án tekna. Fagforbundet segir jafnframt að raunlaun hársnyrtifólks hafi lækkað undanfarin þrjú ár þrátt fyrir aukna veltu í greininni.

Samkomulag náðist eftir meira en sólarhrings sáttamiðlun. Þar fékkst meðal annars fram hækkun lágmarkslauna og samkomulag um að atvinnurekendur greiði sjúkra-, umönnunar- og foreldragreiðslur fyrirfram. Almenna launahækkunin nemur 6,50 norskum krónum á klukkustund. Niðurstaðan fer nú í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna.

Málið í Noregi er eitt fjölmargra sem eru til umræðu innan hársnyrti- og snyrtigreina í Evrópu um þessar mundir. Þar takast á ólík viðfangsefni, allt frá kjörum og starfsöryggi til menntunar, nýrrar tækni og breytinga á þjónustu.

Ítalía – krafist 220 evra launahækkunar

Ítölsk stéttarfélög hafa lagt fram kröfur vegna endurnýjunar kjarasamnings starfsfólks á hársnyrti- og snyrtistofum. Meðal helstu krafna er 220 evra hækkun mánaðarlauna og að tekin verði upp svokölluð fjórtánda mánaðarlaunagreiðsla.

Kröfurnar sýna að launakjör og kaupmáttur eru ofarlega á baugi meðal starfsfólks í greininni á Ítalíu, líkt og í Noregi. Samningaviðræðurnar ná til starfsfólks á hársnyrti- og snyrtistofum og tengdrar þjónustu.

Þýskaland – reynsla erlendra hársnyrta metin að verðleikum

Í Þýskalandi er sjónum beint að því hvernig auðvelda megi starfsfólki í hársnyrtigreinum sem hafa menntun og starfsreynslu frá öðrum löndum að komast inn á þýskan vinnumarkað.

Verkefnið Shaping Futures byggist á því að fólk þurfi ekki að hefja starfsnám sitt frá grunni þótt menntun þess og reynsla sé fengin erlendis. Þess í stað fær það verklega viðbótarþjálfun og tækifæri til að vinna með hársnyrtistofum. Handwerkskammer Hamburg og jobs4refugees koma að verkefninu ásamt Henkel/Schwarzkopf Professional.

Viðfangsefnið á sér hliðstæðu hér á landi, þar sem raunfærnimat er meðal þeirra leiða sem notaðar eru til að meta starfsreynslu og stytta leið fólks að formlegum starfsréttindum. Iðan fræðslusetur hefur til dæmis bent á að raunfærnimat geti nýst fólki með starfsreynslu til styttingar náms.

Spánn – nýjar aðferðir við grátt hár

Á Spáni vekja nýjungar í faginu athygli. Spænski miðillinn OK Diario fjallar um aðferð sem kölluð er „grey blending“ og felst í því að vinna með grátt hár í stað þess að hylja það með hefðbundinni litun.

Markmiðið er að láta gráu hárin falla eðlilega inn í heildarlit hársins með mismunandi tónum. Slíkar aðferðir endurspegla breyttar áherslur í hártísku þar sem náttúrulegra útlit og minni viðhaldsþörf hafa fengið aukið vægi.

Pólland – samskiptin við viðskiptavininn

Í Póllandi hefur vakið athygli umfjöllun þar sem hársnyrtir lýsir starfinu frá sjónarhóli fagmannsins og ræðir hegðun viðskiptavina sem getur skapað vandamál í daglegum rekstri.

Þar koma meðal annars við sögu viðskiptavinir sem mæta of seint eða mæta ekki í bókaðan tíma. Fyrir sjálfstætt starfandi fólk í hársnyrtigreinum og litlar stofur getur slíkt þýtt beint tekjutap enda er oft ekki hægt að fylla lausan tíma með skömmum fyrirvara.

Umræðan varpar ljósi á þá hlið starfsins sem snýr ekki að skærum og litum heldur rekstri, tímastjórnun og samskiptum við viðskiptavini. Þau atriði geta skipt ekki síður máli fyrir starfsumhverfi hársnyrtifólks en tæknileg færni í faginu.