Heldrimannaferð Félags iðn- og tæknigreina

Árleg ferð með „heldra félagsfólki“ Félags iðn- og tæknigreina var farin föstudaginn 4. september í einstakri veðurblíðu. Félagar frá Akranesi og Reykjanesi voru sóttir klukkan átta um morguninn og síðan var lagt af stað á tveimur rútum frá Árbæjarsafni klukkan níu. Ekið var austur fyrir fjall og fleiri félagar teknir upp í Hveragerði og á Selfossi.

Alls tóku 100 manns þátt í ferðinni. Með í för voru Hilmar Harðarson formaður FIT, Rúnar Hreinsson ljósmyndari og þeir Gunnar Halldór Gunnarsson og Ólafur Sævar Magnússon, sem sáu um skipulagningu og fararstjórn.

Fyrsti áfangastaður ferðarinnar var Urriðafoss. Þar var byrjað á því að taka hópinn til altaris og minnast Boga Sigurðssonar harmonikkuleikara. Einnig var boðið upp á samlokur og gos og gafst ferðalöngum tækifæri til að skoða fossinn.

Þaðan var haldið eftir Landvegi, þjóðvegi 26, í átt að hálendinu og Vaðölduveri. Þar rís um þessar mundir fyrsta stóra vindorkuver Íslands, alls 28 vindmyllur sem stefnt er að verði komnar í fullan rekstur í lok árs 2027.

Við komu hópsins á útsýnis- og áningarstað við Vaðölduver tóku á móti honum þau Sigurgeir Björn Geirsson yfirverkefnastjóri og Auður Atladóttir verkefnisstjóri á deild nýframkvæmda. Þau fylgdu hópnum um svæðið og fræddu ferðalanga um vindmyllurnar og þessa umfangsmiklu framkvæmd.

Næst var komið við í Hálendismiðstöðinni Hrauneyjum þar sem snæddur var hádegisverður, lambalæri og eftirréttur, auk þess sem boðið var upp á fordrykk að eigin vali. Þar brustu menn einnig í söng við undirleik Konráðs Óla Fjeldsted á harmonikku.

Eftir matinn var farið í skoðunarferð um virkjunarsvæðið og vindmyllurnar skoðaðar í návígi. Mikil ánægja var í hópnum með heimsóknina og fær starfsfólk Landsvirkjunar kærar þakkir fyrir frábærar móttökur.

Frá Vaðöldu var haldið suður Þjórsárdalsveg og næst stoppað við Hjálparfoss. Þar var aftur tekið til altaris og fossinn skoðaður. Hjálparfoss er tvöfaldur foss neðst í Fossá í Þjórsárdal og var friðaður árið 2020.

Síðasti viðkomustaður dagsins var Félagsheimilið Árnes, þar sem glæsilegt kaffihlaðborð beið hópsins. Óhætt er að segja að borðin hafi svignað undan rjómatertum, heitum réttum og öðru góðgæti. Allir voru sammála um að þeir hefðu vart komist í girnilegra kaffiboð lengi. Þar gafst einnig góður tími til að ræða málin, segja sögur og láta brandarana fljúga áður en haldið var heim á leið.

Heimferðin gekk vel, með viðkomu á Selfossi, í Hveragerði, Reykjavík, Reykjanesbæ og á Akranesi. Ánægðir iðnaðarmenn komu til síns heima um kvöldið, hæstánægðir með daginn og eflaust margir þegar farnir að hlakka til næstu heldrimannaferðar að ári.

Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.