Taflmót IÐN-UNG 17. september
IÐN-UNG og RSÍ-UNG standa fyrir taflmóti fimmtudaginn 17. september kl. 20:00 á Stórhöfða 31.
Það þarf ekki að skrá sig til leiks – bara mæta með keppnisskapið! Gengið er inn Grafarvogsmegin, um inngang H.
Vegleg verðlaun verða í boði fyrir vinningshafa og sigurvegarinn fær að sjálfsögðu bikar!
Boðið verður upp á fljótandi veitingar á meðan á mótinu stendur.
Við hvetjum öll áhugasöm til að mæta og taka þátt!




