170 fengu sveinsbréf úr greinum FIT
Fjölmenn útskrift var haldin á Hótel Nordica í gær þar sem um 230 manns, þar af 170 úr greinum FIT, fengu sveinsbréf sín afhent við hátíðlega athöfn. Flestir útskrifuðst úr húsasmíði en samtals þreyttu 100 húsasmiðir sveinspróf að þessu sinni. Karl Sigurjónsson, félagsmaður úr FIT, varð hæstur á sveinsprófi í húsasmíði.
Þess má líka geta að Zamír Jukaj, einnig félagsmaður FIT, fékk tvö sveinsbréf afhent. Þau voru fyrir bifreiðasmíði og bílamálun. Hann varð hæstur á sveinsprófi í bifreiðasmíði.
Rætt verður við Karl og Zamír, ásamt fleiri sveinum úr FIT sem sköruðu fram úr á sveinsprófum, í næsta tölublaði Fréttabréfs FIT. Blaðið kemur út í byrjun desember.
Að athöfn lokinni flutti leikkonan og skemmtikrafturinn Birna Rún Eiríksdóttir uppistand. Að því loknu var boðið upp á léttar veitingar.
Sveinsbréf afhent 22. september, úr greinum FIT:
| Bifreiðasmíði | 3 |
| Bílamálun | 13 |
| Húsasmíði | 100 |
| Húsgagnasmíði | 3 |
| Málaraiðn | 7 |
| Múrariðn | 12 |
| Pípulagnir | 35 |
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá gærdeginum en fleiri myndir eru í myndasafni FIT.














