Vandað til verka – nýtt hlaðvarp Iðunnar um byggingariðnaðinn

Iðan fræðslusetur hefur hafið útgáfu á nýju hlaðvarpi um bygginga- og mannvirkjagreinar. Hlaðvarpið nefnist Vandað til verka og þar verður kastljósinu beint að ólíkum viðfangsefnum innan greinarinnar, allt frá gæðum og framkvæmdum til viðhalds og sérhæfðrar fagþekkingar.

Bergþór Ingi Sigurðsson, húsasmiður, byggingatæknifræðingur og verkefnastjóri hjá JÁVERK, stýrir þáttunum. Fyrirhugað er að fyrsta serían verði tíu þættir og hafa tveir þeirra þegar verið birtir.

Í fyrsta þættinum er Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, líffræðingur og stofnandi Verkvistar, gestur Bergþórs. Umræðuefnið er raki og mygla í húsum og meðal annars er farið yfir orsakir mygluvandamála, fyrstu merki þeirra og viðbrögð þegar grunur vaknar um raka í byggingum.

Í öðrum þættinum er rætt við Björgvin Stefánsson, húsasmíðameistara og framkvæmdastjóra Þúsund þjala. Þar er sjónum beint að lögnum, vatnstjónum og viðhaldi fasteigna. Björgvin bendir meðal annars á að lagnir séu oft veikasti hlekkurinn í viðhaldi húsa og að leyndir lekar geti valdið verulegu tjóni áður en þeirra verður vart.

Einnig er fjallað um tæringu lagna, gólfhita, efnisval og mikilvægi þess að lausnir og byggingarefni henti íslenskum aðstæðum.

Markmiðið með Vandað til verka er að skapa vettvang þar sem reynsla, fagþekking og þróun innan bygginga- og mannvirkjagreina fái að njóta sín. Viðmælendur koma úr ólíkum greinum og miðla þekkingu sinni á þeim verkefnum og áskorunum sem mæta fagfólki í daglegu starfi.

Þættina má nálgast á vef Iðunnar og á helstu hlaðvarpsveitum.

Myndin hér að neðan var tekin í útgáfuboði þegar fyrsti þátturinn fór í loftið. Á henni eru Melkorka María Ólafsdóttir, Ferdinand Hansen, Ólafur Ástgeirsson, Bergþór Ingi Sigurðsson, Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir og Helga María Adolfsdóttir.