Georg Páll hafði betur og er nýr forseti ASÍ

Georg Páll Skúlason formaður Grafíu var í dag kjörinn forseti Alþýðusambands Íslands. Halla Gunnarsdóttir formaður VR var kjörin fyrsti varaforseti.

Georg Páll hlaut 56,2 prósent atkvæða en mótframbjóðandi hans, Arnaldur Grétarsson, fékk 43,8 prósent. Georg tekur við embættinu af Finnbirni A. Hermannssyni, fyrrverandi formanni Byggiðnar, sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Finnbjörn hefur gegnt embættinu frá því í apríl 2023.

Georg Páll á að baki langan feril í verkalýðshreyfingunni. Hann var kjörinn formaður Iðnnemasambands Íslands árið 1987 og hefur sótt þing ASÍ reglulega frá árinu 2003. Þá hefur hann átt sæti í miðstjórn sambandsins og verið þingforseti síðustu tveggja þinga.

Tvær voru í framboði til embættis fyrsta varaforseta, Halla Gunnarsdóttir og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar. Þar hafði Halla betur.