Opnað fyrir bókanir orlofshúsa 2. nóvember
Opnað verður fyrir bókanir á orlofshúsum FIT mánudaginn 2. nóvember kl. 13. Þá getur félagsfólk bókað dvöl frá byrjun janúar til 31. maí 2027. Reglan er einföld: fyrstur kemur, fyrstur fær.
Páskavikan, frá 24. til 31. mars, er meðal þeirra vikna sem verða í boði. Vegna dvalar í páskavikunni eru dregnir frá 26 punktar.
Fyrst um sinn getur hvert félagsfólk aðeins verið með eina bókun hjá FIT. Þannig fá sem flestir tækifæri til að tryggja sér dvöl. Í byrjun desember verður heimilt að vera með tvær bókanir.
Bókanir og nánari upplýsingar eru á orlofsvef FIT.
Félagsfólk er velkomið að hafa samband við skrifstofu FIT í síma 535 6000 ef spurningar vakna eða aðstoðar er þörf.




