90 nýsveinar fengu réttindin sín

Samtals fengu 90 nýsveinar í níu iðn- og verkgreinum sveinsbréf afhent við hátíðlega athöfn á Hótel Nordica í gær. FIT óskar þessum glæsilegu sveinum til hamingju með áfangann.

Ljósmyndari FIT var á staðnum og myndaði herlegheitin en myndirnar má sjá í myndasafni FIT.

Nýsveinar eftir greinum:

  • Vélvirkjun 27
  • Hársnyrtiiðn 20
  • Bifvélavirkjun 18
  • Snyrtifræði 13
  • Rennismíði 5
  • Veggfóðrun 3
  • Ljósmyndun 2
  • Prentsmíði / Grafísk miðlun 1
  • Prentun 1

Sjá allar myndir hér