IÐAN fræðslusetur – Auglýsing um sveinspróf

IÐAN fræðslusetur – Auglýsing um sveinspróf

 

Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin sem hér segir ef næg þátttaka fæst:

Sveinspróf í bifreiðasmiði 30.-31. janúar, sveinspróf i bílamálun 6.-7. febrúar og í bifvélavirkjun 6. febrúar 2009.
Umsóknarfrestur er til 1. desember.

Í hársnyrtiiðn dagana 10.-11. og 17.-18. janúar 2009, dagsetning skriflegs prófs verður ákveðin síðar, nánari upplýsingar á heimasíðu Iðunnar. Umsóknarfrestur er til 1. desember.

Í snyrtifræði dagana 10.-11. og 17.-18. janúar, skriflegt próf 9. janúar, nánari upplýsingar á heimasíðu Iðunnar. Umsóknarfrestur er til 1. desember.

Í málmiðngreinum í janúar – mars 2009, ef næg þátttaka fæst. Umsóknarfrestur er til 1. desember fyrir aðrar greinar en vélvirkjun. Umsóknarfrestur fyrir sveinspróf í vélvirkjun er til 1. janúar 2009. Nánari upplýsingar á heimasíðu Iðunnar.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2008.

Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Iðunnar og á skrifstofu Iðunnar Sími: 590 6400.