Út í bláinn

Farið verður “Út í bláinn” sunnudaginn 30. mars kl. 13 frá Borgartúni 30 og er áætluð heimkoma kl. 16. Við hvetjum félagsmenn og fjölskyldur þeirra til að nýta sér ferðirnar sem eru þátttakendum að kostnaðarlausu – einungis þarf að koma með góða skapið og ævintýraþrána.
Miðað er við að ferðir verði ávallt síðasta sunnudag mánaðarins fram í maí. Mæting er við Borgartún 30 kl.13. Oftast er farið í léttar gönguferðir þar sem fræðst er um það sem fyrir augu ber og slegið á létta strengi. Frekari upplýsingar fást á þjónustuskrifstofunni í síma 535 6000. |