Hátíðardagskráin 1. maí
![](https://fit.is/wp-content/uploads/2024/04/1920x1080-1.-mai-kaffi-Skjaauglysing2x.png)
Baráttudagur verkalýðsins, 1. maí, verður haldinn hátíðlegur næstkomandi miðvikudag, venju samkvæmt.
ASÍ hefur opnað vefinn 1mai.is þar sem finna má stutt og skemmtileg myndbönd, með leikarann Aron Mola í aðalhlutverki, um sigra verkalýðshreyfingarinnar í gegn um tíðina.
Slagorð dagsins að þessu sinni er Sterk hreyfing – sterkt samfélag.
Félagsfólk um allt land er hvatt til að taka þátt í hátíðarhöldunum.
Dagskráin í Reykjavík verður sem hér segir:
13:00 Safnast saman á Skólavörðuholti.
13:30 Kröfugangan hefst og fer niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan í göngunni niður á Ingólfstorg.
14:00 Útifundur hefst.
- Fundarstjóri er Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar.
- Ræðu flytja einnig Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Þórainn Eyfjörð, formaður Sameykis.
- Bríet og Úlfur Úlfur munu taka lagið og í lok fundarins syngur fundarfólk og tónlistarfólk.
Hér fyrir neðan er dagskrá 1. maí í Reykjavík, Reykjanesi, Selfossi, Akranesi og Vestmannaeyjum.
Reykjanesbær:
Á þessum degi fögnum við því sem áunnist hefur í réttindabaráttu verkafólks í gegnum tíðina og leggjum áherslur á nýjar og breyttar kröfur í þágu vinnandi stétta. Stéttarfélögin á Suðurnesjum bjóða félagsfólki og öðrum íbúum svæðisins á baráttufund í Stapa, Hljómahöll kl.14:00 til 16:00. Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
- Mummi Hermanns leikur ljúfa tóna. Guðbjörg Krismundsdóttir, formaður VSFK, setur dagskrá.
- Ræðumaður dagsins er Hilmar Harðarson, formaður FIT.
- Bjartmar Guðlaugsson tekur nokkra klassíska slagara.
- Guðlaugur Ómar frá Leikfélagi Keflavíkur, Karlakór Keflavíkur slær botninn í dagskrána.
Að venju bjóða stéttarfélögin upp á ókeypis bíósýningu fyrir börnin kl. 13.00 í Sambíóinu við Hafnargötu.
Vestmannaeyjar
Alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins verður fagnað þann 1. maí í Akóges í Vestmannaeyjum. Húsið opnar klukkan 14:00. Þar verður tekið á móti börnum á öllum aldri með andlitsmálningu og blöðrum. Tónlistarveisla er á dagskránni frá Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Fram koma meðal annarra Skólalúðrasveit Vestmannaeyja og Skólahljómsveit vestur- og miðbæjar.
Ávarp verður flutt auk þess sem kaffi, vöfflur og fleira góðgæti verður á boðstólnum. Öll velkomin og aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis.
Selfoss
Lúðrasveit Selfoss leiðir kröfugöngu frá Austurvegi 56 kl. 11:00 að Hótel Selfoss þar sem dagskrá og skemmtun fer fram. Kynnir verður Jónas Yngvi Ásgrímsson frá VR en ræðumaðurinn að þessu sinni er Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Frá námsmönnum í ML verður Klaudia Joanna Figlarska.
Fríða Hansen tekur lagið með Alexander Frey. Afrekshópur Dansakademíunnar kemur fram en fimleikadeild UMFS sér um andlitsmálun.
Kaffi og veitingar verða á boðstólnum.
Akranes
Félag iðn- og tæknigreina. Verkalýðsfélag Akraness, Sameyki, VR, Kennarasamband Íslands og Sjúkraliðafélag Íslands standa fyrir dagskrá á hátíðar- og baráttudegi verkafólks 1. Maí.
Safnast verður saman við skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness að Þjóðbraut 1, kl. 14 og genginn hringur að bæjarskrifstofum Akraness þar sem hátíðardagsrá hefst í sal eldri borgara.
Björg Bjarnadóttir framkvæmdarstjóri SGS flytur hátíðarræðu, fjöldasöngur og Kvennakórinn Ymur syngur nokkur lög.
Boðið verður upp á kaffi og kökur að hætti kórsins.