Skrifað undir kjarasamninga við opinbera vinnuveitendur

Samninganefnd Samiðnar hefur undirritað kjarasamninga við sveitarfélögin, ríki og Reykjavíkurborg. Um er að ræða langtíma kjarasamninga til fjögurra ára með gildistíma frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028.

Samningarnir fela í sér sambærilegar launahækkanir og kjarasamningar á almennum vinnumarkaði sem undirritaðir voru í mars mánuði, auk markmiða og forsenda.

Atkvæðagreiðslur samninganna hefjast á morgun, föstudaginn 12. júlí kl. 12:00.

Vefur Samiðnar