Skráning í ferð eldri félagsmanna FIT

Föstudaginn 13. september verður farið í árlegt ferðalag eldri félaga Félags iðn- og tæknigreina.

Fyrir þá sem eru að fá boð í fyrsta sinn skal upplýst að ferðirnar eru félögum að kostnaðarlausu en allir þeir sem náð hafa 67 ára aldri eða verða 67 ára á árinu fá boð. Boðið gildir aðeins fyrir skráða félagsmenn en ekki maka.

Lagt verður af stað frá bílastæði Árbæjarsafns í Reykjavík stundvíslega kl. 09:00, undir stjórn fararstjóra. Komið verður við á Akranesi, til að sækja þá sem þaðan koma.

Lagt verður af stað frá Krossmóum í Reykjanesbæ og Fossnesti (N1) Selfossi kl 08:00.

Félag iðn- og tæknigreina mun bjóða til hádegisverðar á leiðinni og farið verður í heimsókn á athyglisverðan stað. Gert er ráð fyrir að rennt verði í hlað á Árbæjarsafni við ferðalok, upp úr klukkan 18:00.

Hámarksfjöldi félaga í ferðina miðast við 100 manns í tvær rútur. Því er nauðsynlegt að skrá sig snemma. Skráningin fer fram með rafrænum hætti en henni lýkur 10. september.

Athugið að gefa þarf upp nafn, kennitölu, síma, heimlisfang, starfsheiti og brottfararstað.

Nánari upplýsingar má fá í síma 535-6000.

Skráning fer fram hér.

Hilmar Harðarson, formaður FIT