ASÍ og BSRB bjóða formönnum flokkanna til fundar

ASÍ og BSRB munu þann 18. nóvember næstkomandi efna til fundar með formönnum flokka sem bjóða fram til Alþingis í komandi alþingiskosningum. Fundarboðið smá sjá hér að neðan:

 

ASÍ og BSRB taka á móti formönnum flokka í framboði til alþingiskosninga.

Fundurinn verður á Hótel Hilton Reykjavík Nordica, mánudaginn 18. nóvember, 17:00-19:00.

Yfirskrift fundarins er Samfélag á krossgötum, en þar sitja formenn allra flokka í framboði á landsvísu fyrir svörum um stefnu í málum sem varða launafólk.

Pallborðinu stýra Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

Boði verður upp á léttar veitingar.

Umræðurnar verða helst stilltar inn á þrjú meginstef sem varða launafólk:

  • Afkoma heimilanna
  • Velferðarkerfið og félagslegir innviðir
  • Jöfn tækifæri og möguleikar

Þess utan verður að sjálfsögðu komið inn á aðra málaflokka sem hafa verið til umfjöllunar innan hreyfingarinnar.

Við hvetjum félagsmenn til að mæta á viðburðinn og taka þátt.

Viðburðurinn er á facebook og verður uppfærður eftir því sem nær dregur.