Alvarlegum brotum fjölgar
Leiðari eftir Hilmar Harðarson formann

Alþingiskosningar eru afstaðnar og ljóst að ný ríkisstjórn tekur við völdum á næstunni. Í niðurstöðum kosninganna birtist hávært ákall um breytingar. Fylgi við þá flokka sem mynduðu síðustu ríkisstjórn hefur hrunið og fólk hefur beint atkvæðum sínum annað. Af þessu er ljóst að kjósendur hafa gefið fráfarandi ríkisstjórn falleinkunn.
Öllu máli skiptir að sú ríkisstjórn sem tekur við stjórnartaumunum haldi áfram á þeirri leið sem verkalýðshreyfingin lagði upp með við undirritun hófsamra kjarasamninga í upphafi ársins. Sú vegferð hefur þegar skilað sér í lægri verðbólgu og vöxtum. Þannig hefur tekist að verja þá kauphækkun sem um var samið í febrúar.
Að sama skapi er afar áríðandi að allir leikendur í samfélaginu taki þátt í að vinna að markmiði gildandi kjarasamninga; að stuðla að lækkun verðbólgu og þar með vaxta. Þar eru bankarnir og lífeyrissjóðirnir okkar ekki undanskildir! FIT fordæmir eins og aðrir þá ákvörðun bankanna að hækka vexti á verðtryggð lán um leið og Seðlabankinn lækkar stýrivexti. Stór hluti almennings hefur verið að greiða fasta óverðtryggða vexti á húsnæðislán undanfarin ár en hefur þurft að flýja yfir í verðtryggðu lánin. Þeim stóra hópi mætir nú vaxtahækkun, þegar síst skildi. Stórfyrirtæki, ríki, sveitarfélög, bankar og lífeyrissjóðir þurfa nú að axla sína ábyrgð og vinna að því með verkalýðshreyfingunni að ná niður verðbólgunni. Við þurfum að skapa hér efnahagslegt umhverfi sem gerir ungu fólki kleift að koma þaki yfir höfuðið og gerir venjulegu fólki kleift að lifa hér mannsæmandi lífi.
Jafnframt er mikilvægt að við gerð kjarasamninga sé áfram unnið eftir því módeli sem við lögðum upp með í byrjun þessa árs; að launahækkanir verði hóflegar. Allir þurfa að leggjast á árarnar.
Brotið á fólki á vinnumarkaði
Alvarlegum brotum á vinnumarkaði hefur fjölgað verulega undanfarin misseri. Allmörg mál eru á borði FIT þar sem grunur leikur á um vinnumansal. Oftar en ekki er um að ræða erlent vinnuafl sem hingað kemur í von um betra líf. Fram hefur komið í fjölmiðlum að þessi mál hafi verið að koma upp í ferðaþjónustu og tengdum greinum.
Við í FIT höfum ekki farið varhluta af þessari þróun. Oft á tíðum hefur fólkið, sem brotið er á, greitt fúlgur fjár eða stofnað til hárrar skuldar við samlanda sína vegna landvistarleyfa. Í þeim greinum sem um ræðir eru gjaldþrot tíð. Kennitölur þessara fyrirtækja verða ekki gamlar. Ég fjalla nánar um þetta viðfangsefni í viðtali inni í blaðinu.
Kjarakönnun 2024
Í þessu Fréttabréfi FIT er venju samkvæmt fjallað um kjarakönnun, sem við gerum á hverju hausti. Þátttaka var afar góð en að þessu sinni bárust fleiri en þúsund svör. Þessar kannanir eru mikilvægar félaginu svo hægt sé að fylgjast með þróun launa og aðbúnaðar í okkar greinum.
Kannanirnar geta ekki síður nýst félagsfólki til að bera sig saman við launakjör annarra í sömu greinum og búa sig undir launaviðtöl, svo eitthvað sé nefnt. Í könnuninni að þessu sinni birtist enn aukin ánægja með starfsemi og þjónustu FIT. Um það þykir okkur sérstaklega vænt.
Að lokum vil ég þakka félagsfólki fyrir samtölin á félags- og faggreinafundum FIT, sem haldnir voru í lok nóvember. Við funduðum venju samkvæmt í Reykjanesbæ, á Selfossi, í Reykjavík, á Akranesi og í Vestmannaeyjum. Þar kynntum við meðal annars niðurstöður kjarakönnunarinnar og ræddum lífeyrismál. Það er ómetanlegt að eiga bein samtöl við félagsfólk og heyra hvað á því brennur.
Fyrir hönd FIT sendi ég félagsfólki og landsmönnum öllum mínar bestu kveðjur um gleðileg jól og farsæld á komandi ári.
Hilmar Harðarson formaður
Pistillinn birtist fyrst í Fréttabréfi FIT, nóvember 2024.