Fyrirheitin eru fögur

Leiðari eftir Hilmar Harðarson formann

Ný ríkisstjórn boðaði í stefnuyfirlýsingu sinni að henni væri umhugað um að efla iðn – og verknám. Alltof mörgum nemum hefur verið vísað frá námi undanfarin ár, vegna þess að ekki er pláss í skólunum. Þar hafa stjórnvöld ekki staðið sig í stykkinu. Í stefnuyfirlýsingunni segir: „Framhaldsskólar og háskólar fá stuðning til að efla menntun, nýsköpun og aðgengi um allt land, auk þess sem hugað verður sérstaklega að iðn og verknámi, sí- og  endurmenntun og raunfærnimati.“

Þrátt fyrir að útfærsluna vanti í stefnuyfirlýsinguna er það gleðiefni að ný ríkisstjórn skuli setja þessi mál á oddinn. Stórfelld uppbygging á húsnæði og aðrar aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur boðað kallar enda á starfsfólk með menntun við hæfi.

Undirritaður hlakkar til að sjá hvað ný ríkisstjórn hyggst fyrir í þessum efnum. Fyrirheitin eru fögur en aðgerðir þurfa að fylgja – og það strax. Stjórnvöld þurfa að gera öllum sem vilja kleift á að sækja sér menntun í þessum mikilvægu undirstöðugreinum í samfélaginu. Við iðnaðarmenn vonumst eftir góðum samskiptum við nýjan menntamálaráðherra, til að fylgja þessum áformum eftir.

Unga fólkið í forgrunni

Eins og rakið var í síðasta blaði hafa útskriftir í iðn- og tækninámi aldrei verið fleiri. Nokkrar fjölmennar útskriftir í okkar greinum fóru á síðasta ári og ekkert lát virðist vera á aðsókn í námið. Fyrirhugað er að stækka Borgarholtsskóla, byggja við byggingadeildina í VMA og að byggja nýjan Tækniskóla, eins og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum. Mikilvægt er að hafist verði handa sem fyrst, til að tryggja aukið framboð náms.

Verkiðn heldur Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynninguna Mín framtíð í Laugardalshöllinni dagana 13.-15. mars. Þar takast keppendur á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni þar sem reynir á hæfni þeirra, skipulag og fagmennsku. Fjölmargar greinar munu kynna starfsemi sína þessa. Það er sérstaklega ánægjulegt að grunnskólar skuli í auknum mæli vera farnir að venja komur sínar á Íslandsmótið. Ungt fólk í FIT mun venju samkvæmt keppa í fjölmörgum af þeim keppnisgreinum sem verða á mótinu. Ég hvet félagsfólk til að gera sér ferð í Laugardalshöll umrædda helgi í mars.

Orlofshús

Í þessu blaði kennir ýmissa grasa. Viðtöl við félagsmenn eru áberandi, eins og oftast áður. Niðurstöður orlofshúsakönnunarinnar eru sérstaklega ánægjulegar og vil ég færa þátttakendum mínar bestu þakkir fyrir að gefa sér tíma til að svara. Í þessari árlegu könnum kemur alltaf eitthvað fram sem betur má fara. Það eru dýrmætar upplýsingar fyrir félagið. Oftar en ekki snúa athugasemdirnar að frágangi og þrifum fyrri gesta. FIT hefur, til að bregðast við þessu, samið við fólk um að taka út frágang gesta í nær öllum húsum félagsins. Í því felst að fulltrúi félagsins fer í húsið að dvöl lokinni, og gengur úr skugga um að allt sé eins og það á að vera. Víðast hvar stendur nú einnig til boða að kaupa þrif að notkun lokinni. Það er mun hagkvæmara og skynsamara en að fá sekt fyrir frágang. Vonir okkar standa til að þetta fyrirkomulag muni brýna gesti til að ganga vel um eignirnar og stuðla þannig að enn meiri ánægju félagsmanna. Allir vilja koma að hreinu húsi.

Í blaðinu kynnum við einnig þær framkvæmdir sem yfir standa á orlofseignum félagsins. Þar ber sennilega hæst að nýtt og glæsilegt hús félagsins rís fyrir vorið í Húsafelli.

Hert vinnustaðaeftirlit

Í fréttabréfinu er einnig að finna umfjöllun um hert vinnustaðaeftirlit FIT/Samiðnar, sem er sérstaklega mikilvægt á tímum þar sem vinnumansali og alvarlegum brotum á vinnumarkaði fjölgar. FIT hvetur félagsfólk til að láta í sér heyra ef það verður vart við að pottur sé brotinn á vinnustöðum. Fullum trúnaði er að sjálfsögðu heitið. Við verðum saman að berjast gegn félagslegum undirboðum og svartri atvinnustarfsemi sem þrífst innan lítils hluta fyrirtækja. Það er ánægjulegt að ríkisstjórnin hyggist berjast að krafti gegn þessari óværu.

Efnahagsmálin á góðri leið

Félagsmenn fengu 3,5% kauphækkun um áramótin. Hækkunin byggir á samningum Samiðnar og SA, sem undirritaðir voru snemma árs 2024. Þessir samningar halda enn, þ.e.a.s. það felst enn kaupmáttaraukning fyrir félagsmenn í samningunum.

Verðbólga hefur verið á hraðri niðurleið og við bíðum vongóð eftir næstu vaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands. Það er í þessu ljósi sorglegt að verða vitni að miklum hækkunum innan ákveðinna starfsgreina. Brýning um að vinna áfram að minni verðbólgu virðist hafa farið fram hjá tryggingafélögum og bönkum landsins. Ef til vill telja þessi stóru fyrirtæki sig ekki þurfa að taka þátt. Samiðn, og raunar breiðfylkingin öll, skorar áfram á öll fyrirtæki í landinu að taka þátt í þeirri aðgerð að ná niður verðbólgu í landinu. Á því græða á endanum allir.

Gervigreind innleidd

FIT hefur lengi verið í fararbroddi þegar kemur að innleiðingu tækninýjunga. Síðastliðið sumar var nýr og glæsilegur orlofsvefur tekinn í gagnið. Honum hefur verið vel tekið.

Seint á síðasta ári hefur FIT tekið stórt skref í átt til framtíðar með innleiðingu gervigreindar í starfsemina. Kjarafulltrúar FIT hafa nú aðgang að „Kjaraspjallara FIT“ sem hefur verið þjálfaður í að þekkja vinnurétt og alla kjarasamninga FIT. Þetta mun fyrst um sinn nýtast starfsfólki við að svara félagsmönnum en vonir standa til að innan tíðar geti félagsmenn á lokuðu svæði leitað beint í viskubrunn gervigreindarinnar. Þessi tækni er kynnt hér í blaðinu en þar útskýrir Kjaraspjallarinn sjálfur með eigin orðum hvers hann er megnugur. Sjón er sögu ríkari.

Hilmar Harðarson

Leiðari úr Fréttabréfi FIT, febrúar 2025