„Lífstíðardómur að ráða sig í vinnu hjá Braga“
Viðtal við Svan Kristjánsson húsasmið

„Ég er búinn að starfa hérna síðan 2012. Margir sem vinna með mér hafa unnið hérna í áratugi,“ segir Svanur Kristjánsson húsasmiður hjá Braga Guðmundssyni í Garðinum. Fyrirtækið vinnur nú að því að byggja raðhús og parhús í bæjarfélaginu.
Spurður hvað hafi leitt hann á þessa braut svarar Svanur því til að smíðar hafi verið uppáhalds fagið hans í grunnskóla. „Einar smíðakennari var í miklum vandræðum með mig þar sem ég vildi alltaf smíða eitthvað til að taka með og nota heima. Hann sagði mér að þetta væri kennsla en ekki framleiðsla,“ segir Svanur sem ólst upp í Hlíðunum í Reykjavík.
Fimmtán ára byrjaði Svanur að vinna með Bjarna æskuvini sínum hjá pabba hans, Ágústi Bjarnasyni. „Ég á þeim feðgum margt að þakka. Gústi átti Víking-Hús þar sem við framleiddum og byggðum úr einangrunarkubbum. Sömu eigendur áttu Yl-Hús, þar sem við unnum í hefðbundinni byggingavinnu.
Eignaðist góða vini í skólanum
Þegar að framhaldsskólanámi kom hafði Svanur, sem er fæddur 1984, gert upp hug sinn. Hann fór húsasmíði í Iðnskólanum í Reykjavík. „Flestir í mínum árgangi fóru í MH eða aðra skóla sem mér fannst ekkert spennandi – þrátt fyrir að félagslífið þar hafi kannski verið meira spennandi en í iðnskólanum. Ég eignaðist þó marga góða félaga í Iðnskólanum og kláraði námið á fjórum árum.“ Hann lauk sveinsprófi 2006 eftir að hafa verið á samningi hjá Sigurði Villa Stefánssyni húsasmíðameistara hjá Verkás í Hafnarfirði. „Villi átti fyrirtækið ásamt Ársæli Þorleifssyni og ég lærði margt hjá þeim snillingum.“
Svanur flutti árið 2007 í Garðinn, á heimaslóðir eiginkonu sinnar, Eydísar Evu. Hann kallar þá ákvörðun „augnabliks einbeitingarleysi“, í léttum dúr. Þau áttu von á sínu fyrst barni en eiga í dag þrjú. Svanur vann á ýmsum stöðum fyrstu árin fyrir sunnan og reyndi meðal annars fyrir sér í Noregi.
Hröð uppbygging í Garðinum
„Árið 2012 náði ég loksins að sannfæra Braga Guðmundsson byggingaverktaka í Garðinum að ráða mig í vinna. Ég hef unnið hjá þeim Svenna síðan þá. Þetta er öflugt fjölskyldufyrirtæki sem hefur á rúmum 40 árum komið að mörgum af stærstu verkefnum á svæðinu fyrir sveitarfélögin og útgerðina.“ Íbúðirnar sem þeir hafa byggt í Garðinum eru yfir 100 talsins. „Við erum aðallega að vinna að byggingu íbúða sem fyrirtækið hannar og selur sjálft og uppbyggingin í Garðinum er mjög hröð um þessar mundir auk. Önnur tilfallandi verkefni fylgja en þau eru nánast alltaf fyrir sömu aðilana, sem halda tryggð við fyrirtækið“ segir Svanur.
Svanur byrjaði á meistaraskólanum 2014 en barneignir og önnur lífsins verkefni gerðu það að verkum að hann lauk því námi 2022. Með sanni má segja að Svanur sé ánægður í vinnunni. „Það er lífstíðardómur að ráða sig í vinnu hjá Braga og við erum þéttur hópur og margir hafa unnið hjá honum svo áratugum skiptir. Ég tók snemma að mér að gerast trúnaðarmaður fyrirtækisins en það hefur sem betur fer lítið sem ekkert reynt á það og það hlýtur að vera merki um að menn eru ánægðir í starfi. Ég er það líka.“