Opnað fyrir haust- og vetrarleigu orlofshúsa

Mánudaginn 2. júní kl 13:00 verður opnað fyrir haustleigu á orlofseignum félagsins á orlofsvefnum.

Haustleigan byrjar 22. ágúst og lýkur 5. janúar 2026. Á haustin er ekki stuðst við punktakerfi og reglan er fyrstur pantar fyrstur fær.

Vetrarúthlutun skerðir ekki rétt til sumarúthlutunar og fyrst í stað er ein leiga leyfð á hvern félagsmann.

Minnum á að leigutaka ber að hafa leigusamning til staðar á meðan á dvöl stendur.