Gæludýr leyfð í Kiðárbotnum 1

Ákveðið hefur verið að heimila að nýju gæludýr í Kiðárbotnum 1 Húsafelli, frá og með haustinu.
Frá og með sama tíma verður hætt að nýta Vatnsendahlíð 40 í Skorradal fyrir gæludýr.
Orlofshúsið að Skógarási 1 í Úthlíð verður áfram gæludýrabústaður.
Vinsamlegast athugið að þrátt fyrir þessa heimild er lausaganga hunda ekki leyfð á svæðunum.
Fólki með ofnæmi fyrir dýrum er ráðlagt að fara ekki í þessa bústaði.
FIT bindur vonir við að gæludýraeigendur verði ánægðir með þessa breytingu.
Gæludýraeigendur eru minntir á, eins og aðrir gestir, að þrífa vel eftir veru sína í húsunum.