Desemberuppbót
Desemberuppbót er eingreiðsla sem ber að greiða samkvæmt kjarasamningum. Upphæð ákvarðast af starfstíma og starfshlutfalli. Desemberuppbót er með inniföldu orlofi og greiðist sjálfstætt og án tengsla við laun.
- Desemberuppbót árið 2025, fyrir starfsmann í fullu starfi er 110.000 kr.
- Desemberuppbót árið 2026, fyrir starfsmann í fullu starfi er 114.000 kr.
- Desemberuppbót árið 2027, fyrir starfsmann í fullu starfi er 118.000 kr.