Kjarasamningur við Norðurál Grundartanga

Samningurinn er á milli Norðuráls Grundartanga annars vegar og Félags iðn- og tæknigreina, Verkalýðsfélags Akraness, Stéttarfélags Vesturlands, VR og Rafiðnaðarsambands Íslands vegna aðildarfélaga hins vegar. Hann var samþykktur í atkvæðagreiðslu sem lauk 22. apríl 2025. og gildir til 31. desember 2029.

Launatöflur

Launaflokkur 1.jan. 2025
112/212 465.982
113/213 490.793
114 525.089
115/215 562.003
116/216 605.777
117/217 629.983

Grunnlaun kjarasamnings hækka 1. janúar 2026 sem nemur 95% af breytingu á launavísitölu Hagstofu Íslands fyrir almennan vinnumarkað frá september 2024 til september 2025. Uppbætur ársins 2026 hækka með sama hætti og grunnlaun. Laun hækka með sama hætti 1. janúar 2027, 1. janúar 2028 og 1. janúar 2029.

Ath. Ef misræmi er á upplýsingum á þessari síðu, miðað við samninginn, þá gildir samningurinn.

Desember- og orlofsuppbót

Orlof

Orlofsávinnsla starfshópa verður samdæmr frá og með 1. maí 2025 (orlof til töku eftir 1. maí 2026) og verður orlof dagvinnufólks sem hér segir:

  • Byrjun: 25 dagar (5 vikur)
  • Eftir 3 ár: 28 dagar
  • Eftir 5 ár: 30 dagar (6 vikur)

 

Allt fastráðið starfsfólk á rétt á einum auka frídegi/vakt eftir 1 ár í starfi, útréttingadegi, á ári. Fastráðið starfsfólk á 8 klst. vöktum í 5 hópa kerfi fær einn útréttingadag að auki á ári eftir 1 ár í starfi. Útfærsla á útréttingadögum er í samráði við næsta yfirmann. Ekki er hægt að safna upp útréttingadögum og fyrnast þeir ef ekki nýttir innan almanaksársins. Þessir frídagar teljast ekki inn í orlofsávinnslu.