Samningurinn er á milli Samtaka atvinnulífsins vegna Elkem Ísland ehf. annars vegar og Félags iðn- og tæknigreina, Rafiðnaðarsambands Íslands vegna aðildarfélaga, Stéttarfélags Vesturlands, Verkalýðsfélagss Akraness og VR hins vegar. Samningurinn var undirritaður 18. maí 2021. Hann var síðast framlengdur í apríl 2025 og gildir til 31. desember 2025.
Launatöflur
Grunnlaun 1. jan. 2025 | |
---|---|
Ofngæslumenn | 471.050 |
Dagmenn | 481.545 |
Iðnaðarmenn (I) | 565.029 |
Iðnaðarmenn (II) | 621.531 |
Fulltrúar á skrifstofu | 531.745 |
Desember- og orlofsuppbót
2025
308.766 kr.
2025
308.766 kr.
Framlenging kjarasamnings – launaþróun
- Elkem Ísland ehf. er heimilt, að höfðu samráði við trúnaðarmenn og með einhliða yfirlýsingu til stéttarfélaganna, fyrir lok gildistíma samningsins, að framlengja kjarasamninginn til eins árs í senn, án sérstakrar atkvæðagreiðslu, allt til 31. desember 2028.
- Komi til þess að kjarasamningurinn verði framlengdur frá 1. janúar 2026 til 31. desember 2026 hækka grunnlaun 1. janúar 2026 sem nemur 95% af breytingu á launavísitölu Hagstofu Íslands fyrir almennan vinnumarkað frá september 2024 til september 2025. Uppbætur ársins 2026 hækka með sama hætti og grunnlaun.
- Komi til þess að kjarasamningurinn verði framlengdur frá 1. janúar 2027 til 31. desember 2027 hækka grunnlaun 1. janúar 2027 sem nemur 95% af breytingu á launavísitölu Hagstofu Íslands fyrir almennan vinnumarkað frá september 2025 til september 2026. Uppbætur ársins 2027 hækka með sama hætti og grunnlaun.
- Komi til þess að kjarasamningurinn verði framlengdur frá 1. janúar 2028 til 31. desember 2028 hækka grunnlaun 1. janúar 2028 sem nemur 95% af breytingu á launavísitölu Hagstofu Íslands fyrir almennan vinnumarkað frá september 2026 til september 2027. Uppbætur ársins 2028 hækka með sama hætti og grunnlaun.
Yfirvinnuálag
Yfirvinna
Stórhátíðarvinna
1,14%
1,57%
ATHUGASEMD
Yfirvinna greiðist með 1.14% af grunnlaunum hvers mánaðar, fyrir hvern unninn tíma. Yfirvinna á stórhátíðum greiðist með 1.57% af sama grunni fyrir hvern unninn tíma.
Uppfært 2025: Meðalvaktarálag á 5/5 vöktum hækkar úr 37,62% í 38,26% sem innifelur viðbótargreiðslu fyrir rauða daga sem falla frá mándegi til föstudags.